Textareitur

Call me a slut,
Call me a whore.
Call me whatever,
I've heard it before.

Say that I'm fake,
Say that I lie.
Say what you want,
You wont see me cry.

Cause I know for a fact,
That none of this is true.
But, labeling me ...
What does that make you?

Innskráningar kubbur

Saga Millu, Öðrum víti til varnar

18. febrúar 2009 klukkan 13:05
Fékk leyfi frá Elínu vinkonu til að setja inn söguna hennar Millu, í guðana bænum gott fólk verið á varðbergi....
   
 
Í fyrrakvöld fór ég að sofa, eftir að hafa horft á bíómynd í tölvunni og naslað á dökkum súkkulaðirúsínum upp í rúmi (já ég borða nammi upp í rúmi). Ég leyfði Millu minni að kúra upp í hjá mér sem hún fær endrum og eins. Á hádegi vaknaði ég og það fyrsta sem blasir við mér voru bráðnað súkkulaði á lakinu og Milla að borða súkkulaðirúsínur af bestu lyst.

Ég rauk á fætur og hringdi í dýralækninn, þar var mér sagt að ég ætti að gefa henni salt til að fá hana til að æla. Ég er nýflutt og veit ekkert hvar neitt er í húsinu þannig að ég rauk út í búð með Millu í eftirdragi að kaupa salt. Ég fór bak við hús og hellti upp í hana smá salti. Ekkert virtist gerast og í örvæntingu minni hellti ég meira salti upp í hana. Hún átti að fá tsk af salti en ég held að msk hafi farið ofan í hana. Ég algjörlega panikaði þar sem ég vissi að súkkulaði, sérstaklega dökkt súkkulaði og rúsínur væru eitt það versta sem hún gæti borðað. Þetta gæti haft áhrif líka á því sem svo gerðist.

Stuttu síðar byrjaði hún að æla, ég var guðs lifandi fegin að sjá rúsínur koma upp úr henni, en ekki var neitt súkkulaði sjáanlegt. Síðan tók við martröð.

Hún byrjaði að æla meira og ég var því bara fegin að hún væri að losa allt, en smátt og smátt byrjaði ælan að litast af blóði. Fyrst var þetta aðeins smá blóðslikja í ælunni, síðan jókst magnið af blóði og hún ældi síðan aðeins blóði. Ég hafði hringt í dýralækninn þegar ég sá fyrsta blóðið og var sagt að bíða, hringdi aftur um leið og blóðpollur vall upp úr henni og átti að koma með hana strax.

Ég mætti með hana og henni voru gefnar ýmsar sprautur, k-vítamín, sýklalyf og fleira og fékk magatöflur með heim.

Síðastliðna nótt er búin að vera hræðileg. Hún ældi fjórum sinnum stórum blóðugum pollum og vildi ekkert þurrt né vott sjá. Mér tókst þó að koma ofan í hana vökva með að láta hana sleikja vatn úr lófa mér, en hún náði ekkert að halda því niðri sem endaði með fleiri blóðpollum. Ég get ekki lýst þeirri tilfinningu að horfa á hundinn sinn kúgast og kúgast og blóðið koma vellandi upp úr henni með blóðugt slef lekandi niður. Það er hörmulegt!

Mér var sagt að bíða til í dag og sjá hvernig hún væri og láta vita af statusnum hennar, hún myndi líklegast vera orðin betri í dag. Í morgun ældi hún aftur blóði og mér fannst hræðilegt að geta ekkert gert nema að strjúka henni og hrósa meðan hún kúgaðist.

Hún hefur meira og minna sofið, milli þess sem hún hefur ælt. En núna hefur hún ekki ælt í 7 klst og virðist vera að koma til, fékk hana til að drekka sjálf og til að borða smá ab-mjólk. Milla var "heppin", aftur á móti geta rúsínur, jafn vel lítið magn leitt til nýrnabilunar í hundum og ég get litið gert nema vona að hún sleppi við það.

Fyrir ykkur, sem vitið ekki um hættu súkkulaðis þá get ég bent ykkur á að því dekkra sem súkkulaði er, því meira magn af þeóbrómín er í blóðinu,, en það er efnið sem hundar þola ekki. Innibyrgi hundur 100-150 mg pr. kíló hundsins, verður eitrunar vart. 550-600 gr af mjólkursúkkulaði getur þannig drepið 9 kg hund. En aðeins 55-60 gr af dökku súkkulaði nægir til þess að geta drepið sama hund.

Milla slapp "vel", það sleppa ekki allir svona vel. Sumir hundar sem verða fyrir eitrun af þessu tagi eða öðru efni sem þeir þola ekki geta fengið flogakast, fallið í dá og svo drepist. Milla er þó ekki alveg sloppin, hún er enn slöpp, þjáist í maganum og verður ekki góð næstu 2-3 daga.

Í guðanna bænum, lærið af mínum mistökum og passið ykkur á hvar þið leggið nammið frá ykkur, svo sem og aðrar fæðutegundir sem hundar þola ekki. Margir vilja segja að hundurinn þeirra hafi sko borðað þetta og hitt í gegnum ævina og ekki orðið meint af, þessir sömu hundar geta svo dáið vegna nýrna-eða lifrarbilunar seinna á ævinni og eigendur gera ekki samasem merki á milli þess og því sem þau gáfu hundinum að borða um ævina.

Þessar upplýsingar hef ég viðað að mér í gegnum tíðina, sumar heilagri en aðrar, en engu að síður, ég veit hvað þetta hefur gert hundinum mínum.

Auglýsing

Heimssýningin

Klukkan

Könnun

Halda áfam að blogga??

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...