Gefst upp
22. mars 2009 klukkan 21:38
Er búin að blogga þvílíkt blogg núna tvisvar og það birtist ekki svo ég gefst upp!!!
ARG OG GARG
ARG OG GARG
Er til eitthvað sætara????
04. mars 2009 klukkan 19:34

Skreppur og Leppur

Leppur að kúa hjá Öllu

Kúra saman
Robba og Tyru synir.
Saga Millu, Öðrum víti til varnar
18. febrúar 2009 klukkan 13:05
Fékk leyfi frá Elínu vinkonu til að setja inn söguna hennar Millu, í guðana bænum gott fólk verið á varðbergi....
| Í fyrrakvöld fór ég að sofa, eftir að hafa horft á bíómynd í tölvunni og naslað á dökkum súkkulaðirúsínum upp í rúmi (já ég borða nammi upp í rúmi). Ég leyfði Millu minni að kúra upp í hjá mér sem hún fær endrum og eins. Á hádegi vaknaði ég og það fyrsta sem blasir við mér voru bráðnað súkkulaði á lakinu og Milla að borða súkkulaðirúsínur af bestu lyst. Ég rauk á fætur og hringdi í dýralækninn, þar var mér sagt að ég ætti að gefa henni salt til að fá hana til að æla. Ég er nýflutt og veit ekkert hvar neitt er í húsinu þannig að ég rauk út í búð með Millu í eftirdragi að kaupa salt. Ég fór bak við hús og hellti upp í hana smá salti. Ekkert virtist gerast og í örvæntingu minni hellti ég meira salti upp í hana. Hún átti að fá tsk af salti en ég held að msk hafi farið ofan í hana. Ég algjörlega panikaði þar sem ég vissi að súkkulaði, sérstaklega dökkt súkkulaði og rúsínur væru eitt það versta sem hún gæti borðað. Þetta gæti haft áhrif líka á því sem svo gerðist. Stuttu síðar byrjaði hún að æla, ég var guðs lifandi fegin að sjá rúsínur koma upp úr henni, en ekki var neitt súkkulaði sjáanlegt. Síðan tók við martröð. Hún byrjaði að æla meira og ég var því bara fegin að hún væri að losa allt, en smátt og smátt byrjaði ælan að litast af blóði. Fyrst var þetta aðeins smá blóðslikja í ælunni, síðan jókst magnið af blóði og hún ældi síðan aðeins blóði. Ég hafði hringt í dýralækninn þegar ég sá fyrsta blóðið og var sagt að bíða, hringdi aftur um leið og blóðpollur vall upp úr henni og átti að koma með hana strax. Ég mætti með hana og henni voru gefnar ýmsar sprautur, k-vítamín, sýklalyf og fleira og fékk magatöflur með heim. Síðastliðna nótt er búin að vera hræðileg. Hún ældi fjórum sinnum stórum blóðugum pollum og vildi ekkert þurrt né vott sjá. Mér tókst þó að koma ofan í hana vökva með að láta hana sleikja vatn úr lófa mér, en hún náði ekkert að halda því niðri sem endaði með fleiri blóðpollum. Ég get ekki lýst þeirri tilfinningu að horfa á hundinn sinn kúgast og kúgast og blóðið koma vellandi upp úr henni með blóðugt slef lekandi niður. Það er hörmulegt! Mér var sagt að bíða til í dag og sjá hvernig hún væri og láta vita af statusnum hennar, hún myndi líklegast vera orðin betri í dag. Í morgun ældi hún aftur blóði og mér fannst hræðilegt að geta ekkert gert nema að strjúka henni og hrósa meðan hún kúgaðist. Hún hefur meira og minna sofið, milli þess sem hún hefur ælt. En núna hefur hún ekki ælt í 7 klst og virðist vera að koma til, fékk hana til að drekka sjálf og til að borða smá ab-mjólk. Milla var "heppin", aftur á móti geta rúsínur, jafn vel lítið magn leitt til nýrnabilunar í hundum og ég get litið gert nema vona að hún sleppi við það. Fyrir ykkur, sem vitið ekki um hættu súkkulaðis þá get ég bent ykkur á að því dekkra sem súkkulaði er, því meira magn af þeóbrómín er í blóðinu,, en það er efnið sem hundar þola ekki. Innibyrgi hundur 100-150 mg pr. kíló hundsins, verður eitrunar vart. 550-600 gr af mjólkursúkkulaði getur þannig drepið 9 kg hund. En aðeins 55-60 gr af dökku súkkulaði nægir til þess að geta drepið sama hund. Milla slapp "vel", það sleppa ekki allir svona vel. Sumir hundar sem verða fyrir eitrun af þessu tagi eða öðru efni sem þeir þola ekki geta fengið flogakast, fallið í dá og svo drepist. Milla er þó ekki alveg sloppin, hún er enn slöpp, þjáist í maganum og verður ekki góð næstu 2-3 daga. Í guðanna bænum, lærið af mínum mistökum og passið ykkur á hvar þið leggið nammið frá ykkur, svo sem og aðrar fæðutegundir sem hundar þola ekki. Margir vilja segja að hundurinn þeirra hafi sko borðað þetta og hitt í gegnum ævina og ekki orðið meint af, þessir sömu hundar geta svo dáið vegna nýrna-eða lifrarbilunar seinna á ævinni og eigendur gera ekki samasem merki á milli þess og því sem þau gáfu hundinum að borða um ævina. Þessar upplýsingar hef ég viðað að mér í gegnum tíðina, sumar heilagri en aðrar, en engu að síður, ég veit hvað þetta hefur gert hundinum mínum. |
|
Árs uppgjör......
02. janúar 2009 klukkan 20:37
Já....2008 er búið... úff hvað þetta tók stuttan tíma og þá er komið að því að gera það upp, ætlast er til þess að ég muni hvað ég gerði allt þetta ár.. látum okkur sjá.....
Robbi fékk íslenskt og alþjóðlegt meistarastig. Hann og Tyra urðu besta par dagsins á sýningu. Þau voru pöruð og von er á 4 til 5 apaböddnum eftir 2 vikur.
Rolf kom inn í líf mitt, hann losnaði úr einangrun í mars. Hann er undan drauma rakkanum mínum honum Guy.
Stormur er ennþá sami gormurinn og alltaf samur við sitt, gerir allt sem hann má og má ekki gera hehe...
Ég fór til Svíþjóðar í fríðu föruneyti á heimssýninguna og fékk þar að sýna hann Morgan. Og sjá Guy verða WW-08. Þessi ferð var bara snilld og ætla ég mér að fara aftur 2010 þegar hún er í Danmörku, fæ að vera hjá Lindunni... hehe já já mar er búinn að redda sér gistingu.
Ég sýndi helling af hundum á þessu ári og var það bara gaman, sýndi Fabio á haustsýningunni og varð hann besti hvolpur dagsins.
Mamma og pabbi komu heim í 2 mánaða frí.
Brósi brillerar í lögfræði.
Þetta er árið í grófum dráttum......
Sennu og Rolf hvolpar fæðast ekki.... þeir ákváðu að fæðast á 54 degi og lifði enginn, 2 tíkur og 2 rakkar, öll svört.

Meiri viðbót....
07. desember 2008 klukkan 22:36
Jæja var að koma frá Báru og það er staðfest................Tyra er líka hvolpafull sáust 3-4 og svo sáust 4 í Sennu... Bara spennandi í janúar. Hvolparnir hennar Sennu eru áætlaðir 6 jan og Tyru 10 dögum seinna eða í kringum 16 jan. Bæði got í kringum afmælisdaginn minn 11 jan, væri óskandi að ég fengi þau í afmælisgjöf en hey mar fær ekki allt sem mar vill.
Við mamma erum búin að vera á fullu að jólast, húsið skreytt frá toppi til táar og tréð úti í garði. Búnar að baka 2 sortir af smákökum og 2 tilbúnar inni í ískáp í bakstur á morgun. Búin að kaupa jólakjólinn.
Þetta verða æðisleg jól, ég fæ að hafa alla þá sem mér þykir vænst um hjá mér. Lindan mín er að koma heim frá Danmörku um jólin. Þetta verða snilldar jól.
Annars er ég á fullu að vinna og svo erum við búin að vera heimsækja fjölskylduna hægt og sígandi, mamma og pabbi hafa ekki séð þau í 1 og 1/2 ár.
En jæja darlings langaði bara að segja ykkur frá því að ég er að verða tvöföld amma í jan.

Dududududuuuuuuuuuuuu
02. desember 2008 klukkan 10:42
jæja þá eru mamma og pabbi komin heim. Greyin eru að krókna úr kulda en mjög hamingjusöm að vera komin heim þrátt fyrir það.
Það er líka staðfest að Senna skvís er með hvolpa, fyrir þá sem ekki vita það þá á hún von á Rolfa böddnum.
Tyra fer svo í næstu viku og þá kemur það í ljós hvort hún sé bomm....
Annars er lítið að frétta svo sem.. Bara á fullu að dúllast með mömmu að undirbúa jólin hægt og sígandi.
Knús til allra sem lesa.

Það styttist.....
26. nóvember 2008 klukkan 09:57
Jæja...
Nóg búið að vera í gangi....
Um helgina síðustu var lokahóf smáhundadeildar þar sem heiðraðir voru stigahæsti hundur ársins, öldungur ársins og hvolpar ársins.
419.jpg)
Þetta er hann Zidan, franskur bulldog sem var stigahæstur.
899.jpg)
Stigahæsti öldungur ársins INTUCH ISCH Homerbrent Kokuo, Japanskur chin.
Stigahæsti hundurinn og öldungurinn fengu farandbikar og erum við að reyna byrja þá hefð og verður gaman eftir nokkur ár að geta rakið sögu deildarinnar.

Maríó rúsínurass, ég alveg kolféll fyrir þessum mikla karakter í kotinu. Hann er algjör vargur og gormur og bara æðislegur, var ekki lengi að bræða mig og munaði ekki miklu að ég hefði rænt honum af henni Kollu. :)
Svo á sunnudeginum var jólagleði Chihuahuadeildar í Gusti. Bara gaman, jólalög spiluð og jólatré á staðnum. Kaffi og meðlæti. Bara huggulegheit.
Amma og afi komu heim frá Spáni á laugardeginum, það var mjög gott að sjá þau.
Næsta laugardag koma svo mamma og pabbi heim og jiiiiii.... það verður sko mikil gleði á þessum bæ.
En jæja nóg í bili.

Got the point
17. nóvember 2008 klukkan 18:29
Ok ok ok ég læt undan hópþrýstingi hehehe..
Verð að byrja a því að setja inn snildar link og ég hvet ALLA til að kíkja á þetta þetta er bara snilld.
http://www.dailymotion.com/video/x7f5d8_bee-skit-nov-15-2008_school
Ég hló mig máttlausa og fékk í magann bara snilldin ein.
En jæja hvað er að frétta???
Jú.... Það er búið að para Rolf og Sennu og eru komnir 13 dagar síðan. Það er líka búið að para Robba og Tyru og eru þeir hvolpar væntanlegir viku seinna en Sennu hvolpar. Hvolparnir eiga að koma í kringum afmælisdaginn minn sem er 11.janúar ef þetta hefur tekist......, þetta verður bara gaman. Svo verða hvolparnir í yngri hvolpaflokki í júní og held ég barasta að það verði snilldin ein... vonandi fæ ég að sýna eitthvað af þessum apaböddnum mínum. Það er búið að ganga lýilega vel að para.
Ég er hætt á skrifstofu Pennans og farin að vinna í fyrirtækjaþjónustinni, rosalega gaman, nóg að gera allann daginn og snillingar sem ég vinn með. Vinna 8-16 aðra vikuna og 9-17 hina vikuna.
Mamma og pabbi koma heim eftir 2 vikur.... Hlakka svooooooooooo til að fá þau heim, ekki búin að hitta þau síðan í ágúst í fyrra. Þau verða heima í 2 mánuði. Það verða æðisleg jól í ár.
Ég hef verið að hjálpa Berglindi og Klöru við sörubakstur og já...... það er subbulegt en ógeðslega gaman. "Brundklessur" hér og þar og alls staðar hehehe.
Berglind vinkona átti afmæli á laugardaginn fyrir viku síðan og hélt Atli kærastinn hennar sörprice afmæli fyrir hana og OMG ég vissi ekki hvert Berglind ætlaði þegar Atli tók klútin frá augunum á henni. Þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég hef upplifað í laaaaaaaaangan tíma, takk fyrir mig. En vá hvað það var erfitt að halda kjafti um þetta í 2 vikur, gat talað við þennann og þennann um þetta og svo fór mar að tala við Berglindi og þau voru ófá skiptin sem ég missti þetta næstum út úr mér.... úps
Svo átti Linda vinkona afmæli 13 nóv. alein og yfirgefin i Danaveldi hefði sko alveg verið til í að vera hjá henni.
Sama dag eignaðist Óli vinur minn fyrsta barn sitt, sæta stúlku sem er alveg eins og pabbi sinn.
Stormur varð 3 ára 10 nóv. vá "litla" barnið mitt er orðið fullorðið...
Síðast en ekki síst vil ég óska Lindu vinkonu til hamingju með INTCH titilinn hans Orra.
Knús til ykkar allra sem nennið að lesa bullið mitt. Endilega kvittið svo ég viti að einhver lesi þetta bull.

Blogg????
04. nóvember 2008 klukkan 17:41
Er mikið að spá í því hvort ég eigi að nenna þessu það virðist enginn lesa bloggið mitt hvort sem er......
Kvittið if you´ve been here og ég veg og met eftir því hvort ég haldi þessu áfram.....
Takk takk *knús*